Robert van Gulik (1910-1967) var hollenskur rithöfundur sem er best þekktur fyrir ævintýrin um Dee dómara. Sögupersónuna fékk hann að láni úr kínverskri skáldsögu frá 18. öld sem hann þýddi yfir á ensku og var hans fyrsta útgefna verk. Í kjölfarið skrifaði hann 17 bækur um Dee dómara sem komu út á árunum 1949-1968. Gulik var margt til lista lagt en ásamt ritstörfunum var hann austurlandafræðingur,...